Föstudagur, 27. janúar 2012
Undirbúningur v - Þorrablót og fl
Búið að vera dálitið snúningasamt undanfarna daga, m.a. vegna Þorrablóts sem fer fram á morgun á Hótel Framtíð. Að öðru leyti búið að vera þokkalegt veðurfar en nú stefnir í að verði umtalsverð hálka þar sem komin var fimm stiga hiti á svellin nú í kvöld.
Mynd dagsins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 23. janúar 2012
Hálkan mætt aftur
Þá er hálkan mætt aftur og allar götur svellaðar. Hvítt yfir og harður snjór en ekki þykkt á honum. Mikið símaat í dag.
Mynd dagsins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 22. janúar 2012
Þorrablótsundirbúningur - norðurljósamyndir
Helgin búin að vera dálítið undir í snúningum vegna Þorrablóts um næstu helgi. Í kvöld hringdi svo Snjólfur í mig og lét mig vita af norðurljósadýrð og snaraðist ég þá út og smellti nokkrum. Dálítið gaman að sjá þessa þar sem ljósin hringa sig yfir vatnstankinum, annars alveg ótrúleg litabrigði, grænt og fjólublátt ljósahaf.
Myndir kvöldsins
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 19. janúar 2012
Sveitarstjórnarfundur og fl.
Búið að vera fremur vindsasamt undanfarna daga, en að öðru leyti bara ágætt veður. Sveitarstjórnarfundur í dag og margt á dagskrá. Eftir sveitarstjórnarfund kíkti ég með Gauta og Skúla Ben á skarfagrey sem hímdi undir veggnum stóra ofan við höfnina og er ljóst að eitthvað þjakar blessaðan fuglinn þann. Skrapp heim og náði í myndavélina og smellti nokkrum myndum af honum. Þegar ég kom til baka hafði skarfurinn fest svefn og sat eins og hauslaus væri en svo rétti hann úr sér þegar ég hafði smellt nokkrum myndum af.
Myndir dagsins - Skarfurinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 18. janúar 2012
Á spretti í höfuðborginni og heim aftur
Skrapp til höfuðborgarinnar á mánudaginn og kom aftur í gærkvöldi. Fór ásamt sveitarstjóra á marga staði á stuttum tíma eins og gjarnan þegar við förum í bæinn. Fórum m.a. í Þjóðskjalasafnið og hittum þar fyrir forstöðumann vegna skráningarverkefnis sem við erum í samvinnu um, þá fórum við á Teiknistofuna hjá Guðrúnu þar sem við fórum yfir nokkur þjóðþrifamál, síðan til Innanríkisráðherra ,síðan vegamálastjóra og svo endaði ég á að hitta þingmenn og þaðan beint upp í flugvél austur. Býst við að frændi vor Egill verði ekki ánægður með mig þar sem að ég gleymdi að hringja í hann í bænum.
Fínt veður á Egilsstöðum þegar austur var komið en grenjandi rigning suður með fjörðum og mátti prísa mig sælan að hafa ekki keyrt allt undan bílnum í Kambaskriðum þar sem tveir stórir steinar höfðu oltið út á veginn.
Í dag utan hefðbundinna starfa, vann ég að undirbúningi fundar á morgun með sveitarstjóra og fl. Skrapp svo í sund seinnipartinn og spjallaði við Þór í Sólhól í pottinum.
Mynd dagsins
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 15. janúar 2012
Þorrablótsfundur og fl.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 14. janúar 2012
Útför í dag - rok og rigning
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 13. janúar 2012
Veðrið leikur við Djúpavog
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 12. janúar 2012
Ýmislegt við að vera
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 11. janúar 2012
Dagur án viðburða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

